Fundarboð
Aðalfundur Skátasambands Reykjavíkur 2015 verður haldinn í Skátamiðstöðinni Hraunbæ 123 , fimmtudaginn 26. mars 2015 kl. 20:00
Dagskrá fundarins eru skv. lögum SSR gr: 2.6.
- Kosning fundarstjóra og ritara.
- Lögð fram skýrsla stjórnar. – Umræður.
- Lagðir fram endurskoðaðir reikningar og fjárhagsáætlun til eins árs. – Umræður.
- Tillögur um lagabreytingar kynntar. – Umræður.
- Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga, skýrslu stjórnar, reikninga og fjárhagsáætlunar.
- Kosning stjórnar, sbr ákveði 2.7, og tveggja varamanna. Kosið skal í hvert embætti fyrir sig.
- Kosning tveggja skoðunarmanna.
- Kosning þriggja manna í laganefnd og þriggja manna í uppstillingarnefnd fyrir næsta aðalfund og skal formaður kosinn sérstaklega. Kjósa skal sérstaklega um hvern mann.
- Kosning eins fulltrúa af tveimur í eftirtalin ráð og nefndir: Minjanefnd, Úlfljótsvatnsráð og Hafravatnsráð. Kosningin er til tveggja ára.
- Önnur mál.
Hér má sjá tillögur Uppstillingarnefndar og Laganefndar fyrir aðalfundinn.
Lög SSR má finna á http://ssr.is/log-ssr/