Aðalfundur Skátasambands Reykjavíkur verður haldinn í Skátamiðstöðinni Hraunbæ 123 ,  fimmtudaginn 28.mars 2019 kl. 19:30

Dagskrá fundarins eru skv. lögum SSR gr: 2.6.

  • Kosning fundarstjóra og ritara.
  • Lögð fram skýrsla stjórnar. – Umræður.
  • Lagðir fram endurskoðaðir reikningar og fjárhagsáætlun til eins árs. – Umræður.
  • Tillögur um lagabreytingar kynntar. – Umræður.
  • Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga, skýrslu stjórnar, reikninga og fjárhagsáætlunar.
  • Kosning stjórnar, sbr ákvæði 2.7. Kosið skal í hvert embætti fyrir sig.
  • Kosning tveggja skoðunarmanna.
  • Kosning þriggja manna í laganefnd og þriggja manna í uppstillingarnefnd fyrir næsta aðalfund og skal formaður kosinn sérstaklega. Kjósa skal sérstaklega um hvern mann.
  • Kosning eins fulltrúa af tveimur í eftirtalin ráð og nefndir: Minjanefnd, Úlfljótsvatnsráð og Hafravatnsráð. Kosningin er til tveggja ára.
  • Önnur mál.

Laga- og uppstillingarnefnd

Tillögur frá aðilum SSR um menn í stjórn og endurskoðendur, svo og tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist viðkomandi nefndum í síðasta lagi tveim vikum fyrir aðalfund. Á aðalfundi er heimilt að bera upp tillögur um menn í hvert það embætti sem kjósa skal um, en minnst fimm fulltrúar verða að standa að tilnefningunni. Leggja skal fram skriflegt samþykki með tilnefningum þeirra sem ekki eru staddir á fundinum.

Í laganefnd eru:  Sigurjón Einarsson Segli, Þórhallur Helgason og Ylfa Garpsdóttir Segli er formaður nefndarinnar.

Í uppstillingarnefnd eru:, Elmar Orri Gunnarsson Landnemum, Hrönn Þormóðsdóttir Landnemum og  Auðna Ágústsdóttir, Árbúum er formaður nefndarinnar.

Lög SSR er hægt að finna á vefsíðunni undir Gagnasafn

 

Fundargögn

Ársskýrsla SSR 2018_drög

2018 Ársreikningur SSR_drög

2019 lagabreytingatillögur

2019 tillögur uppstillingarnefndar