Fimmtudaginn 4. desember s.l. efndi Skátasamband Reykjavíkur til aðventufagnaðar í skátaheimili Árbúa að Hraunbæ 123 í Reykjavík. Var þetta uppdekkað matarboð, fínasta fínt með laxaréttum í forrétt, hangikjöt með góðu meðlæti í aðalrétt og kaffi á eftir. Til veislunnar var boðið stjórnum allra skátafélaganna í Reykjavík, velunnurum skátastarfsins og samstarfsfólki í Skátamiðstöðinni. Samkoman hófst með ávarpi Hrannar Þormóðsdóttur, formanns SSR þar sem hún m.a. þakkaði sjálfboðaliðum dygga aðstoð við skátastarfið. Það má nefnilega með sanni segja að sjálfboðaliðum skátastarfs er sjaldnast þakkað nægilega óeigingjarnt framlag við margskonar verkefni. Var síðan gengið til borðhaldsins og gerður góður rómur að, enda undir forsjá Arthurs Péturssonar, gjaldkera SSR. Eftir að veilsuföngum hafði verið gerð góð skil voru sungnir jólasöngvar undir stjórn veislustjórans sem var Siggi Úlla, Skjöldungur.
Þetta var vel heppnuð og skemmtileg stund í aðdraganda jólanna.
- Þessir eru pínu lúmskir á svipinn. Helgi Jóns, Garðbúum, Liljar og Baldur í Segli.
- Landnemar með landnámsmatinn, Arnfinnur og Haukur uppteknir af laufabrauðinu.
- Brosmild og falleg. – Ráðsmennirnir á Úlfljótsvatni. Guðrún Ása og Gummi Finnboga.
- Árbúar vígðu nýjan stiga í skátaheimili sínu þetta kvöld. Hér er greinilega stjórnarfundur á stigapallinum hjá Árbúum af því tilefni. – Auðna, Valborg, Jón Andri, Hanna og Þórhallur.
- … Og þarna er Írena í Hamri að skrifa nafnið sitt á gestaskinnið.